October 18, 2007

Tannsi og fimmtudagur

Fór með stelpuna til tannsa í gær og það var allt í góðu lagi, svo fór ég líka og það var lagað pínu en ekkert stórt neitt. Var að keppa í gærkvöldi, mér gekk bara rosavel og gerði ég 13Q points ekkert smá ánægð með það, þurfti líka að fara bæta mig, vona bara að mér gangi eins vel á laugardaginn því það er stigamót þá svo helgina eftir það. Þið verðið að hugsa vel til mín á laugardaginn kemur sérstaklega þú Edda mín, mér gengur alltaf mjög vel þegar ég segi þér að hugsa vel til mín:) Annars var gærdagurinn fínn kíkti á Bryndísi eins og ég geri á hverjum degi "hehe" en það er líka alltaf jafn skemmtilegt, ég fæ líka að vera með skvísunni minni smá tíma á dag.

"Hef ekkert meira að segja nema hafið það sem allra best og farið vel með hvort annað"
kv Arna Rut

2 comments:

Anonymous said...

Ég hugsa alltaf vel til þín elskið mitt;*
Edda Henný

krakkatrio.blogspot.com said...

Okkur finnst líka alltaf jafngaman þegar þú/þið komið til okkar dúllan mín. ;o*